Heimskautsgerðið.com 
   Heimskautsgerði   Staðsetning   Upplýsingar   Hótel Norðurljós

 

 

" Heimskautsgerðið Raufarhöfn - Nyrsta þorpi á Íslandi "

Melrakkaásinn ofan við þorpið var eins og sniðinn fyrir hugmyndina. Haukur og Erlingur veltu á milli sín hugmyndum í nokkur ár, Haukur gerði nokkur líkön og skissur, þar til þeir voru ásáttir um hvað hugmyndin ætti að ganga langt. Síðast liðið ár kynntu þeir hugmyndina fyrir Guðnýju Hrund, sveitarstjóra, sem strax fékk brennandi áhuga á málinu og vegna áhuga hennar fékk hugmyndin aukinn byr og var kynnt íbúum á menningarhátíðinni í október sl. við góðar undirtektir.
Í þessu verki er verið að tengja saman nútíð og forna norður-evrópska arfleifð. Heimskautsgerðið verður að öllu leiti hlaðið úr grjóti úr grjótnámi hreppsins. Stærstu steinarnir gætu vegið allt að 6 tonnum. Gerðið myndar hring, sem er 54 m í þvermál, með fjórum inngönguhliðum sem vísa í höfuðáttirnar, ásamt bendisteini í miðju, allt að 12 metra háum, sem sýnir eyktamörkin með spili ljóss og skugga. Hliðin standa opin til að hleypa í gegn um sig ljósi á sólstöðum og jafndægrum.
Utan við gerðið verða 72 viksteinar, þar sem hinum fornu dvergum úr Völuspá eru ætlaðir staðir. Þar má nefna Austra, Norðra, Vestra og Suðra, auk allra hinna. Til gamans má nefna að dvergur fyrsta vetrardags skv. íslensku tímatali heitir Vetrarfaðir og þeir sem næstir honum koma heita Frosti, Fjalar og Fjörkaldur. Allir þessir 72 dvergar falla vel að árhringnum, þ.e.a.s. vetrardvergar, vordvergar, sumardvergar og haustdvergar. Þannig má vel ætla að verið sé að nefna 72 vik (vikur) í árinu, því hugsanlegt er að vikurnar hafi verið 72 áður fyrr.
Vitað er að í Rússlandi og Úkraníu voru 5 daga vikur. Hverjum dverg er gefið ákveðið rými í kring um gerðið og gefnir ákveðnir dagar. Haukur Halldórsson hefur gert samantekt á hlutverki þeirra og er að teikna þá og Jónas Friðrik er að vinna að texta með myndunum.
Ætlunin er að fá táknræna steina frá sem flestum stöðum í heiminum til að mynda dvergahringinn. Undanskildir eru þó Suðri, Austri, Norðri og Vestri, sem verða fengnir hver og einn úr sínum landsfjórðungi, eftir hinni fornu skiptingu Íslands. Þegar hafa nokkrir aðilar sýnt dvergasteinunum áhuga og er það vel, því þeir munu verða notaðir sem ein fjármögnunarleið þessa mikla mannvirkis og listaverks. Þegar hafa fengist nokkrir styrkir til verksins og leitað verður eftir fleirum.


 

Print View   Site Map